Hér koma upplýsingar um fyrirtækið.

Almennar upplýsingar um fyrirtækið
og starfsemi þess:

Þetta er meðalstórt fyrirtæki og höfum við kappkostað að eiga góð samskipti við verkkaupa svo og aðra aðila sem að málum kunna að koma.
Starfmannavelta hefur verið lítil og kappkostum við að hlúa að okkar fólki eins og frekast er unnt. Ánægður starfsmaður skilar mun betra verki og er andlit fyrirtækisins út á við.
Fræðslumál starfsmanna er lykilatriði, þ.e mannleg samskipti, vinnuaðferðir, meðferð efna og tækja og hefur stafsfólk okkar setið námskeið sem haldin hafa verið.
ÓS verktakar hafa mikla reynslu í ræstingum - bónleysingu/bónun gólfdúka og má þá nefna Linolium/vinyl o.s fv.
Við sjáum um viðhald bóns víða í fyrirtækjum og einnig High speed/pólera.

Gæða- og umhverfisstefna.

Gæða- og umhverfisstefna: Það er stefna félagsins að nota eingöngu umhverfisvæn efni sem skaða hvorki lífríki né náttúru. Þetta eru viðurkennd efni frá einum af stærsta framleiðanda á ræstivörum og efnum, JohnsonDiversey og Butcher´s, og eru allar frekari upplýsingar þ.á m. pH gildi efna að finna á netslóðunum www.butchers.com - www.jwpeurope.com - http://www.spartanchemical.com/web/webhome.nsf
Til að tryggja rétta notkun efna þá notum við nákvæma efnaskammtara, Outpost tæki, sem skammtar sápu bæði í úðabrúsa, ræstivagna svo og gólfþvottavélar. Þetta er stórt atriði í að viðhalda gólfum í sem bestu ásigkomulagi og með þessu er komið í veg fyrir að sápa hlaðist upp og moppuför myndist. Tækin hafa reynst mjög vel þar eru gerðar mjög miklar kröfur hvað varðar hreingerningu/ræstingu. Þetta atriði kemur í veg fyrir að efni séu notuð í of stórum skömmtum og er þetta stórt atriði í umhverfisstefnu fyrirtækisins.Margar af þeim vörum er við notum eru með Norræna umhverfismerkinu svaninum. Aðrar vörur sem við notum eru umhverfisvæn eins og hægt er og eru framleidd undir mjög ströngum gæðastaðli. Fyrirtækin eru vottuð með ISO stöðlum.

Reynsla starfsmanna: Allir starfsmenn okkar fara í verkþjálfun hvað varðar vinnuaðferðir, meðferð efna og tækja/véla, mannleg samskipti. Það er lykilatriði að starfsmenn komi vel fyrir þar sem þeir eru andlit fyrirtækisins. Við kappkostum að hlúa vel að okkar starfsfólki.

ÓS verktakar bóna reglulega þúsundir fermetra árlega.


Skrifstofa: 5 888 400